Optiker.is Hafa samband

Viltu verða sjóntækjafræðingur?

Sjóntækjafræðingar mæla sjón, ráðleggja við að finna réttu gleraugun og linsur og eru oft fyrstir til að koma auga á augnsjúkdóma. Fjölbreytt heilbrigðisstarf þar sem fólk, tækni og heilsa mætast.

Námið er ekki kennt á Íslandi, en Íslendingar sitja við sama borð og heimamenn á Norðurlöndunum. Hér finnur þú allt um námið í Danmörku, Noregi og Svíþjóð.

Í öllum löndunum er hægt að fara í meistaranám að loknu grunnnámi: við Aarhus Universitet í Danmörku, USN í Noregi og KI í Svíþjóð.

Námið í hnotskurn

SkóliBorgLengdKennslumálUmsóknarfresturSótt um á
Erhvervsakademi København (EK)Danmörk Kaupmannahöfn 3,5 ár · 210 ECTS Danska 15. mars 2027 kl. 12 optagelse.dk
Erhvervsakademi DaniaDanmörk Randers / fjarnám 3,5 ár · 210 ECTS Danska 15. mars 2027 kl. 12 optagelse.dk
Universitetet i Sørøst-Norge (USN)Noregur Kongsberg 3 ár · 180 ECTS Norska 15. apríl 2027 samordnaopptak.no
Karolinska Institutet (KI)Svíþjóð Stokkhólmur (Solna) 3 ár · 180 hp Sænska 15. apríl 2027 antagning.se

Danmörk

Erhvervsakademi København (EK)

Professionsbachelor i optometri · Kaupmannahöfn

3,5 ár210 ECTS, 7 annir
Ágúst 2027Nám hefst að sumri/hausti
Launað starfsnám
0 kr.Engin skólagjöld fyrir EES-borgara

Uppbygging námsins

Sjö annir, þar af þrjár í starfsnámi í gleraugnaverslun. Nemendur finna sjálfir starfsnámsstað með aðstoð starfsnámsstjóra skólans og fá greidd laun á meðan. Kennt er á dönsku en mikið af námsefninu er á ensku.

Inntökuskilyrði

  • Stúdentspróf
  • Engelsk B, Matematik C og Biologi C eða Bioteknologi A
  • Dönskukunnátta, t.d. stúdentspróf í dönsku eða sambærilegt
  • Enska: Ef enskan úr stúdentsprófinu jafngildir ekki Engelsk B þarf eitt af þessum enskuprófum:
    • TOEFL iBT að lágmarki 4,5 (próf tekin fyrir 21. janúar 2026: að lágmarki 94)
    • IELTS að lágmarki 6,5
    • Cambridge CPE eða CAE með einkunn C
    • Cambridge First Certificate með einkunn A
    Vertu tímanlega í að taka enskuprófið. Það getur tekið nokkrar vikur að fá próftíma og niðurstöður, og þær gætu þurft að liggja fyrir áður en umsóknarfresturinn rennur út.
15. mars 2027kl. 12:00 (danskur tími) fyrir umsækjendur með erlent stúdentspróf. Umsóknir opna 1. febrúar 2027.

Erhvervsakademi Dania

Professionsbachelor i optometri · Randers eða í fjarnámi

3,5 ár210 ECTS, 7 annir
Ágúst/sept. 2027Nám hefst að hausti
Launað starfsnám
0 kr.Engin skólagjöld fyrir EES-borgara

Uppbygging námsins

Bóklegt nám á 1., 2. og 4. önn, starfsnám á 3. önn og svo samtals um eitt ár af starfsnámi á síðari hluta námsins. Hægt er að taka námið í Randers eða í fjarnámi, þar sem bóklegi hlutinn er á netinu en verklegt nám 1–2 daga í viku í Randers.

Inntökuskilyrði

  • Stúdentspróf
  • Engelsk B, Matematik C og Biologi C eða Bioteknologi A
  • Kennt er á dönsku
  • Enska: Dania gefur ekki upp lágmarkseinkunnir í enskuprófum. Ef enskan úr stúdentsprófinu jafngildir ekki Engelsk B, hafið samband við skólann
  • Takmarkaður fjöldi plássa
15. mars 2027kl. 12:00 (danskur tími) fyrir erlent stúdentspróf. Laus pláss eru stundum auglýst eftir frest.

Kvóti 1 og kvóti 2

Í Danmörku er námsplássum skipt í tvo hópa, kvóta, með sitt hvorn umsóknarfrestinn.

Kvóti 1 · frestur 5. júlí 2027

Plássum er úthlutað eingöngu eftir meðaleinkunn á stúdentsprófi. Þetta er leiðin sem flestir Danir fara.

Kvóti 2 · frestur 15. mars 2027 kl. 12

Hver umsókn er metin sérstaklega, t.d. út frá einkunnum í lykilfögum, starfsreynslu og hvatabréfi (motiveret ansøgning).

Íslendingar sækja um fyrir 15. mars 2027

Með íslenskt stúdentspróf þarf að sækja um í síðasta lagi 15. mars 2027 kl. 12, á sama tíma og í kvóta 2. Júlífresturinn gildir ekki fyrir erlend próf. Sendu ferilskrá og hvatabréf með umsókninni, því það getur skipt máli í mati á henni.

Noregur

Universitetet i Sørøst-Norge (USN)

Bachelor i optometri · Campus Kongsberg, eina sjóntækjafræðinám Noregs

3 ár180 ECTS, 6 annir
Ágúst 202790 pláss á ári
Háskólaklíník / starfsnám
~900 NOKAnnargjald. Engin skólagjöld fyrir EES-borgara

Uppbygging námsins

  • 1. ár: líffærafræði, lífeðlisfræði, lífefnafræði og stærðfræði. Sjónmælingar og að smíða, gera við og stilla gleraugu.
  • 2. ár: mikil klínísk þjálfun, sjónmælingar á sjúklingum og sjónskimun skólabarna.
  • 3. ár: fleiri skoðunaraðferðir og skoðun sérstakra sjúklingahópa, t.d. sjónskertra, augnsjúkdómar og linsumátun, auk 8 vikna starfsnáms í gleraugnaverslun.

Háskólaklíník

Skólinn rekur eigin klíník þar sem nemendur skoða sjúklinga undir handleiðslu nokkra daga í viku. Starfsnám í gleraugnaverslun fer fram í þremur lotum yfir námstímann.

Rétt fyrir námsbyrjun (í viku 32) heldur skólinn sumarnámskeið í stærðfræði, sem mælt er með ef stærðfræðin er orðin ryðguð.

Inntökuskilyrði

  • Almennt háskólanámshæfi (generell studiekompetanse). Þriggja ára framhaldsskólanám frá Norðurlöndum gefur rétt til að sækja um.
  • Ekki þarf sérstakt norskupróf ef þú hefur lært dönsku, norsku eða sænsku í framhaldsskóla heima.
  • Námið er kennt á norsku en mikið af námsefninu er á ensku.
  • Enska: 10 feiningar í ensku á 2. eða 3. þrepi.
  • Sakavottorð þarf vegna starfsnáms og klínískrar kennslu.
15. apríl 2027Umsóknir opna 1. febrúar 2027. Sótt er um í gegnum Samordna opptak, leitarkóði 222 894.

Svíþjóð

Karolinska Institutet (KI)

Optikerprogrammet · Eye Center of Excellence, Solna (Stokkhólmi)

3 ár180 hp (ECTS), 6 annir
Lok ágúst 202750 pláss
Tvær gráðurOptikerexamen og medicine kandidatexamen
0 kr.Engin skólagjöld fyrir EES-borgara

Uppbygging námsins

  • 1. ár: að mestu bóklegt. Ljósfræði, sjónmælingar og líffærafræði, lífeðlisfræði og sjúkdómar augans.
  • 2. ár: augnsjúkdómar, samsjón (hvernig augun vinna saman) og linsur, auk lyfjafræði og örverufræði.
  • 3. ár: klínísk áhersla. Sjónmælingar á sjúklingum, augnsjúkdómar, sjónskerðing og endurhæfing, linsur og lokaverkefni.

Kennslan er blanda af fyrirlestrum, verklegum æfingum, klínískri vinnu og starfsnámi. Hluti kennslunnar fer fram í KTH (Kungliga Tekniska Högskolan), tækniháskólanum í Stokkhólmi.

Klínísk þjálfun

Klíníska þjálfunin fer fram í Eye Center of Excellence í Solna. Stærstur hluti hennar er á augnklíník námsins hjá S:t Eriks-augnsjúkrahúsinu, þar sem nemendur skoða sjúklinga undir handleiðslu. Auk þess fara nemendur í a.m.k. fjögurra vikna starfsnám í gleraugnaverslun.

Kennt er á sænsku, en sumir fyrirlestrar og mest af lesefninu eru á ensku. Námið er verklegt og krefst þess að nemendur mæti á staðinn. Að loknu námi er hægt að taka eins árs meistaranám í klínískri optometri við KI.

Inntökuskilyrði

  • Stúdentspróf
  • Matematik 2a, 2b eða 2c og Naturkunskap 2, eða sambærilegt
  • Sænska: Íslenska og danska, norska eða sænska úr stúdentsprófi duga yfirleitt.
  • Enska: 20 feiningar í ensku (jafngildir Engelska 6). Annars þarf eitt af þessum enskuprófum:
    • IELTS Academic að lágmarki 6,5 (engin eining undir 5,5)
    • TOEFL iBT að lágmarki 90 (20 í ritun)
    Vertu tímanlega í að taka enskuprófið. Það getur tekið nokkrar vikur að fá próftíma og niðurstöður, og þær gætu þurft að liggja fyrir áður en umsóknarfresturinn rennur út.
15. apríl 2027Sótt er um á antagning.se, umsóknarkóði KI-41007. Opnar u.þ.b. mánuði fyrir frest.

Gott að vita

Sami réttur og heimamenn

Samkvæmt norrænum samningum geta Íslendingar sótt um háskólanám á Norðurlöndunum á sömu forsendum og heimamenn, og prófgráður eru viðurkenndar á milli landanna. Info Norden

Tungumálið

Allt námið er kennt á dönsku, norsku eða sænsku. Dönskunámið úr menntaskóla er góður grunnur og gott er að byrja að æfa tungumálið áður en námið hefst.

Námslán

Nám á Norðurlöndunum er lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Kynntu þér reglurnar tímanlega. menntasjodur.is

Mismunandi réttindi

Réttindin sem fylgja náminu eru mismunandi eftir löndum. Í Noregi fylgja réttindi til að nota augndropa við skoðun (droparéttindi) grunnnáminu. Í Svíþjóð fást þau með meistaranámi, og þeir sem læra í Danmörku geta sótt sér þau síðar með námskeiði í Noregi.

Heim að námi loknu

Til að starfa sem sjóntækjafræðingur á Íslandi þarf starfsleyfi frá Embætti landlæknis. Við aðstoðum gjarnan ef spurningar vakna.

Ertu með spurningar?

Sendu okkur tölvupóst og við svörum eins fljótt og við getum. Sjóntækjafræðingar á Íslandi deila gjarnan reynslu sinni af náminu.

optiker.island@gmail.com